Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, spurði á Alþingi í dag í sérstakri umræðu um viðbrögð stjórnvalda við fé Íslendinga í skattaskjólum hvort Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra teldi sjálfur eðlilegt að hann stýrði vinnu um málaflokkinn á vegum ríkisins og væri yfirmaður skattaeftirlits.
Þessi ummæli Helga féllu í því ljósi að Ísland ætti að banna aðild að skattaskjólum. Helgi telur að Ísland eigi að reyna að ná öllum upplýsingum um þá sem hafa skotið undan.
\"Ætlar fjármálaráðherra ekki að beita sér fyrir því að við sækjum þessar upplýsingar inn í bankana?\" spurði Helgi. Hann bætti við hvort Bjarna þætti sjálfum trúverðugt að hann stæði í ræðustól til andsvara í umræðunni sem fjármálaráðherra og yfirmaður skattaeftirlits eftir að upplýst var að hann væri sjálfur í aflandsskjölunum, þ.e. í Panamalekanum. Helgi spurði hvort Bjarni sæi ekki að það væri óhjákvæmilegt fyrir hann að þing yrði rofið til að nýr trúnaður skapist í kringum fyrirsvarsmann þessara mála.
Umræðan á Alþingi bar yfirskriftina: Viðbrögð stjórnvalda við skattaskjólum. Bjarni svaraði ekki spurningum Helga beint.
Katrín Jakobsdóttir hóf umræðuna og ræddi veikingu innviða samfélaga vegna fjár sem geymt væri í skattaskjólum. Hún vill að skattrannsóknastjóri fái rýmri heimild til að áætla tekjur ef fullnægjandi gögnum er ekki skilað vegna aðildar í skattaskjólum. Leyndin sé hluti þess sem sóst sé eftir. Jafnvel komi til greina að setja inn refsiákvæði ef gögn eru ekki lögð fram og fyrningartími lengdur. Að aðilum í skattaskjólum verði gert skylt að gefa upplýsingar til skattrannsóknastjóra sé brýnt. Mikilvægt sé að fá skýr skilaboð um að Alþingi sé alvara.
Bjarni Benediktsson sagði að þingið yrði að bregðast við því ákalli að stjórnvöld taki alvarlega á skattsvikum. Þegar hafi verið gripið til aðgerða. Hann sagði í síðara svari að ítrekað væri vegið að trúverðugleika ríkisstjórnar sem hefði þó verið virk áður en \"þetta kom upp\" í að vega að rót vandans, upplýsingaleynd og skattsvikum. Stjórnin hefði sett fjármuni í að kaupa gögn og ná í skottið á svikurum. Spurt væri hvort það ætti ekki bara að banna fólki að geyma pening í aflandsfélagi? \"Hvað haldiði að það þýði?\" spurði Bjarni og sagði að það væri þegar búið að banna það. Um samkeppni landa á millum væri Ísland \"ágætis skattaskjól\" s.s. í kvikmyndaiðnaði eða afsláttum til stóriðjufyrirtækja.
Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu, sagði í umræðunni að notkun skattaskjóla gæfi þeim sem nýttu sér þau þá ímynd að þeir hinir sömu reyndu að láta aðra bera þær byrðar sem þeir ættu sjálfir að standa undir. Bjarni Benediktsson væri undir þessa sök seldur.
Brynhildur Pétursdóttir, BF, sagðist ekki hafa þá tilfinningu að ríkisstjórnin vildi gera mikið til að uppræta þessi mál.
Willum Þór Þórsson, Framsóknarflokki sagði að samvinna ríkja á millum til agerða í kjölfar Panamalekans væri það besta sem komið hefði út úr málinu.
Helgi Hrafn, Pírötum, sagði málið skítamál fyrir ríkisstjórnina og að hún hefði engan trúverðugleika.
Katrín Jakobsdóttir sagði í síðari ræðu sinni að fjármálaráðherra talaði alltaf eins og hrein skattsvik væru aðalmálið og að heilbrigð samkeppni yrði að vera milli ríkja. \"En er eitthvað heilbrigt við leynd og ógegnsæi?\"