Á ársfundi SA- Samtak atvinnulífsins sl.miðvikudag boðaði forsætisráðherra aukna skatta á ferðaþjónustuna. Af þessi tilefni segir Grímur Sæmundsen formaður SAF- Samtaka ferðaþjónustunnar:\"Áform um frekari uppbyggingu verða í uppnámi og samkeppnisstaða mun skekkjast en frekar. Uppbygging sem nú er hafin mun algjörlega stöðvast á jaðarsvæðum.\"
SAF kölluðu saman félagsfund vegna boðaðra breytinga á virðisaukaskatti. \"Við mótmælum þessum fordæmalausu áformum sem gjörbreyta rekstarumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja\" sagði Grímur Sæmundsen á fundinum.
SAF telja að ríkissjóður nái sextán til tuttugu milljörðum króna af greininni með þessum nýju skattaáformum þegar þau koma að fullu til framkvæmda. Þessar upphæðir eru til viðbótar þeim níutíu milljörðum króna sem ferðaþjónustan skilar ríkissjóði með sköttum og gjöldum.
Nánar www.saf.is