Skatta-bjarni stekkur af stað

Án þess að fletta upp kosningaloforðum Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu, fyrir þar síðustu kosningar og svo áfram, rekur mig ekki minni til að þar hafi verið lofað skattahækkunum.

Vegir landsins minna flestir á heimtraðir að eyðibýlum. Svo ömurlegt er það nú. Búið er að lofa stórátaki. Fátt ber þess merki að staðið verði við það. Nú er hún góða staða ríkissjóðs alls ekki svo góð. Hinn skattaglaði fjármálaráðherra sagði í samtali við rúv:

„Það eru bara tveir valkostir þarna, það er að láta meiri háttar stærri framkvæmdir bíða eða flýta þeim og fjármagna þær sérstaklega.“

Nánar á

http://www.midjan.is/skatta-bjarni-stekkur-af-stad/