Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handsamaði í gærkvöld mann sem grunaður er um aðild að skartgriparáni í Gullsmiðjunni í Hafnarfirði í gærdag, en tveir menn ógnuðu þar starfsfólki og höfðu á brott með sér nokkurn ránsfeng. Félagi þess handtekna er enn ófundinn.
Sá handtekni, sem nú gistir fangageymslur lögreglunnar sýndi enga samvinnu þegar lögregla hafði hendur í hári hans suður með sjó í gærkvöld heldur þvert á móti; hann skaut þar af loftbyssu í átt að lögreglumönnum sem sakaði þó ekki, en liði réttvísinnar tókst að lokum með fulltingi sérsveitarmanna og lögreglumanna af Suðurnesjum að koma járnum á kauða.
Þeir sem búa yfir upplýsingum um málið er bent á að hafa þegar samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.