Skar sporðinn af hákarli og sleppti honum – sjáðu myndbandið

Ljótt myndband er nú í dreifingu á Facebook, þar sem sjómenn á línu- og netabátnum Bíldsey SH-65 sjást sleppa hákarli í sjóinn eftir að annar þeirra hefur skorið sporðinn af honum. Halldór Gústaf Guðmundsson tók upp myndbandið á síma sinn, sem sýnir Gunnar Þór Óðinsson, skipstjóra bátsins, hreykja sér af því að hafa skorið sporðinn af hákarlinum.

„Tókstu af honum sporðinn bara?“ spyr Halldór í myndbandinu.

Gunnar svarar: „Farvel „my friend,“ hahaha. Gangi þér vel að synda núna ræfillinn þinn,“ og ljóst að honum er mjög skemmt.

Halldór spyr aftur: „Tókstu af honum sporðinn fíflið þitt?“ og Gunnar svarar í hæðnistón: „Ég gerði það, ég er morðingi!“

Halldór ákvað að deila myndbandinu á Facebook síðu sinni, þar sem hann skrifaði: „Nú verður allt vitlaust (hann var hálfdauður, átti aldrei séns),“ og eitthvað hafði hann til síns máls þar sem athugasemdir við myndbandið voru flestar afar neikvæðar.

Eiríkur Eiríksson segir til að mynda: „[S]vona getur gerst á sjónum en að pósta þessu svaka stoltur og hlæ[j]andi er algjört virðingarleysi fyrir lifandi dýri.“

Sisi Ingólfsdóttir segir: „Ææi, þetta er svo ógeðslegt, og státa sig svo af þessu, hvað svo[?]“

Björn Sverrisson segir meðal annars: „[Þ]etta er nú bara eitt það allra heimskulegasta sem ég hef séð.“

Ragnheiður Rögnvaldsdóttir segir: „Strákar svona gerir maður ekki, þetta er hörmung.“

Christel Ýr Johansen náði að vista myndbandið áður en Halldór eyddi færslu sinni af Facebook. Hún deildi því og skrifaði:

„ÞVÍLÍKU SJÚKU AUMINGJAR! Gæinn er svo stoltur af sér að hann slökkti á kommenta kerfinu því enginn var víst sammála honum.. [N]áði SR áður en hann lokaði á það..[D]eilið að vild;)”

Sjáðu myndbandið hér: