Skar ríkisstjórnina úr snörunni

Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins reynir að átta sig á stöðu umsóknar Íslands um aðild að ESB í nýjum pistli sínum á hringbraut.is. Hann vekur athygli á því að forseti Alþingis hafi séð sig knúinn til að skýra erindi utanríkisráðherra til ESB, enda hafi svo verið komið að jafnt forsætisráðherra og utanríkisráðherra "hafi skipt um skoðun frá einni stund til annarrar" hvaða skilning beri að leggja í það. Jafnvel Morgunblaðið hafi sagt einn daginn að bréf ráðherra jafngilti afturköllun umsóknar, en næsta dag sagt Ísland vera áfram umsóknarríki.


Þorsteinn telur í skrifum sínum að forseta Alþingis hafi tekist að túlka raunverulegan vilja stjórnvalda fyrir þingheimi í gær. Orð forsetans þar þýði að nýjan þingmeirihluta þurfi ekki, að fengnu samþykki þjóðarinnar, til að sækja um það aftur að ljúka viðræðunum. Áður hafi formaður utanríkisnefndar komið fram með svipaða skýringu.


Þorsteinn skrifar svo: "Með þessum skilningi getur forseti Alþingis haldið því fram að ályktun Alþingis hafi ekki verið ógilt með bréfi utanríkisráðherra. Forsetinn teflir vissulega á tæpasta vað með þessa túlkun. Hún verður ekki beint ráðin af orðanna hljóðan. En þessi niðurstaða var eina leiðin til að skjóta skildi fyrir Alþingi eins og komið var. Og trúlega hefur forsetinn skorið ríkisstjórnina úr snörunni í leiðinni."