„skapar tortryggni og vantraust“ segir katrín

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur greint frá afstöðu sinni til umsvifa Bjarna Benediktssonar í viðskiptalífinu samhliða þingmennsku sinni, sem Stundin hefur fjallað um á grundvelli Glitnisskjalanna. Frá segir hér í frétt Stundarinnar.

„Það er mín afstaða að stjórnmálamenn eigi almennt ekki að vera umsvifamiklir í viðskiptum samhliða stjórnmálastarfi þar sem það skapar tortryggni og vantraust,“

segir Katrín við Stundina.

Hún segir það hinsvegar hafa legið fyrir að Bjarni hafi ekki komið að slíkum umsvifum í áratug og því hafi VG vitað að hverju var gengið við myndun stjórnarsamstarfsins.

„Þá liggur einnig fyrir, líkt og fram kemur í frétt Stundarinnar um þessa fyrirspurn, að upplýsingar um margþætt umsvif núverandi fjármálaráðherra í viðskiptalífinu samhliða þingmennsku fyrir hrun höfðu komið fram áður en gengið var til síðustu kosninga. Að sama skapi liggur fyrir að núverandi fjármálaráðherra hefur ekki komið að neinum slíkum umsvifum í áratug. Þessar upplýsingar lágu því fyrir þegar Vinstri græn tóku ákvörðun um að mynda núverandi ríkisstjórn“,segir Katrín.

Einnig er frétt um þetta á Eyjan/dv hér að neðan:

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/10/29/skapar-tortryggni-og-vantraust-segir-katrin-um-stjornmalamenn-vidskiptum-segir-upplysingarnar-um-bjarna-ben-hafa-legid-fyrir/