Kristín Helga, formaður Rithöfundasambands Íslands, hefur sent kraftmikið bréf til félaga í Rithöfundasambandinu og gerir meðal annars að umræðuefni stöðu rithöfunda þegar bókaforlög verða gjaldþrota.
Kristín Helga nefnir nýlegt dæmi frá Uppheimum og kallar það „nörurlega sögu“. Höfundar standi berskjaldaðir á meðan banki haldi útgáfunni gangandi til að fá upp í skuldir. Höfundar fari „aftast í röðina“ eins og formaðurinn kemst að orði Lögfræðingur RSÍ skoðar nú með Rithöfundasambandinu hvort hægt sé að innleiða í samninga ákvæði sem verja skáld og höfunda við þessar aðstæður.
Þá segir formaðurinn að nýrir samningar rithögunda við Ríkisútvarpið og varðar bæði sjónvarp og útvarp séu löngu tímabærir. Núverandi samningar séu úreltir.
„Við höfum verið með RÚV samningana í skoðun undanfarna mánuði og litið til samninga við sambærilegar stofnanir á Norðurlöndum. Þar stöndumst við alls ekki samanburð. Viðræður munu óhjákvæmilega taka mið af þeim samanburði. Samninganefnd er í burðarliðnum. Eftir samtal við útvarpsstjóra liggur fyrir að þessar viðræður geta hafist í október. Okkur hafa einnig borist margar þarfar og góðar ábendingar frá félagsmönnum varðandi greiðslur fyrir leikverk og flutning útgefins efnis í útvarpi og sjónvarpi, endurflutning á gömlu efni og varðandi framkvæmd við greiðslu til höfunda,“ segir m.a. í bréfi formanns Rithöfundasambandsins.