Skáldin beina sjónum sínum að Kántríbæ

Skáldkonan Þórdís Gísladóttir segir að nú sé kjörið tækifæri fyrir Rithöfundasamband Íslands til að kaupa Kántríbæ til að nýta sem aðstöðu fyrir höfunda.

Fréttablaðið greindi frá því fyrr í dag að Kantríbær væri til sölu fyrir tæpar 36 milljónir. Í fréttinni kemur fram að bók­halds­þjónusta Suður­nesja hafi keypt Kántrýbæ á Skaga­strönd á nauðungar­upp­boði fyrir 10 milljónir og er því á­sett verð eignarinnar nú rúmlega þrisvar sinnum hærra eða 35,9 milljónir.

Kántrýbær var áður í eigu hins lands­fræga tón­listar­manns Hall­björns Hjartar­sonar sem rak þar veitinga­hús árum saman.

Í auglýsingu Fasteignasölunnar segir að hér sé á ferðinni kjörið tækifæri fyrir metnaðarfulla einstaklinga að hefja á ný rekstur í þessu landsfræga húsi. Eflaust væri hægt að nýta það sem nokkurs konar athvarf fyrir rithöfunda og listamenn enda ekki óþekkt að skapandi einstaklingar flýi borgina og komi sér fyrir í sveitasælunni til þess að fá ró og næði til að skrifa næsta sitt næsta stórverk (eða jafnvel smáverk!).

Formaðurinn, Karl Ágúst Úlfsson, tekur vel í hugmyndir félaga sinna og segist ætla að sjálfsögðu að skoða þetta enda á hann rætur að rekja til Skagastrandar.