Skagfirskar kýr geti flogið til flórída!

„Ef krónan er sterkasti og stöðugasti gjaldmiðill í heimi, hvers vegna er hún þá ekki leyst úr gjaldeyrishöftunum? Ef kýrnar í Skagafirði hafa vængi, hvers vegna fljúga þær ekki til Flórída?“

Þannig spyr Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands þegar Stundin leitaði viðbragða við þeim ummælum sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra lét falla á Bylgjunni að verðtryggð íslensk króna sem „sterkasti og stöðugasti“ gjaldmiðill heimsins.

Fræðimenn hefur rekið í rogastans vegna ummælanna. Segir Stundin frá viðbrögðum tveggja hagfræðiprófessora við HÍ, annars vegar Þorvaldar en einnig Þórólfs Matthíassonar.

Fram kemur hjá Stundinni að gengi íslensku krónunnar hafi verið stöðugt allra síðustu ár innan gjaldeyrishaftanna, en ef sveiflur gjaldmiðilsins undanfarna áratugi eru bornar saman við aðra gjaldmiðla blasi við önnur mynd.