Skagamenn í áfalli: um 50 manns sagt upp störfum - vilhjálmur áhyggjufullur: „núna er allt farið“

„Formaður var rétt í þessu að koma af afar erfiðum starfsmannafundi sem forsvarsmenn fiskvinnslufyrirtækisins Ísfisks héldu með starfsmönnum. En á þessum fundi þurfti fyrirtækið að tilkynna að öllum starfsmönnum væri sagt upp störfum frá og með mánaðamótum, en um er að ræða uppundir 50 starfsmenn.“

Þetta segir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASÍ í pistli sem birtur er á Hringbraut.is og á síðu Verkalýðsfélags Akraness. Vilhjálmur greinir frá því að störf 50 manns séu í verulegri hættu. Vilhjálmur segir:

„Fram kom í máli forsvarsmanna fyrirtækisins, að allar uppsagnir séu gerðar með fyrirvara um að fyrirtækinu takist að endurfjármagna sig, en til þessa hefur það ekki tekist, en sú vinna er enn í gangi.“

Vilhjálmur bætir við: „Það er óhægt að segja að þessi tíðindi séu enn eitt þunga höggið sem við Akurnesingar höfum þurft að þola í atvinnumálum á liðnum árum og misserum, en rétt er að geta þess að stór hluti þeirra sem fengu þessi tíðindi í dag, gengu í gegnum uppsagnir þegar HB Grandi lokaði og hætti allri starfsemi á Akranesi árið 2017.“

Lítið annað er að gera, að mati Vilhjálms en að bíða og búa sig undir það versta en vona að forsvarsmönnum Ísfisks takist á næstu dögum og vikum að endurfjármagna sig, þannig að ekki komi til uppsagna. Vilhjálmur segir:

„Það er engum vafa undirorpið að enn og aftur eru verulegar blikur á lofti hér á Akranesi í atvinnumálum. Það er ekki bara að það vofi yfir okkur að tæplega 50 fiskvinnslukonur og menn sé við það að missa lífsviðurværi sitt ef fyrirtækinu tekst ekki að endurfjármagna sig, heldur eru líka verðið að ógna stórkostlega atvinnuöryggi og lífsviðurværi þeirra sem starfa hjá fyrirtækjunum á Grundartanga.“

Þá segir Vilhjálmur enn fremur að íbúar á Akranesi geti ekki endalaust látið koma fram við sig með þessum hætti:

Það er þyngra en tárum taki þessi staða sem er að teiknast upp í atvinnumálum okkar Akurnesinga en viðbótarhækkun á raforku til stóriðjunnar á Grundartanga er eins og áður sagði milli 5 og 6 milljarðar sem er litlu minna er allur sjávarútvegurinn greiðir í auðlindagjöld.  Það liggur fyrir að þegar nánast öll framlegð fyrirtækjanna er þurrkuð upp vegna græðgisvæðingar Landsvirkjunar þá mun það leiða til þess að verið er að ógna lífsviðurværi og atvinnuöryggi fjölda fólks.“

Vilhjálmur segir: „Núna er allt farið og næsta skemmdarverk sem nú er unnið að er að Landsvirkjun er að takast að eyðileggja rekstrarskilyrði stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga, sem mun valda okkur Akurnesingum og nærsveitungum ómældum skaða.“

Vilhjálmur hvetur bæjarbúa áfram og segir mikilvægt að þétta raðirnar og stefnir á að halda íbúafund þar sem farið verði yfir þessa alvarlegu stöðu í atvinnulífinu á svæðinu. Vilhjálmur segir:

„Á þann fund yrði að sjálfsögðu þingmönnum kjördæmisins boðið sem virðast þessa daganna ekki hafa miklar áhyggjur af stöðu mála hér á Akranesi!“