Skagafjörður er það sveitarfélag á Íslandi sem fær hvað mestan stuðning í nýrrri Ersamus+ áætlun Evrópusambandsins, en í ár gafst sveitarfélögum í fyrsta sinn kostur á að sækja um Erasmus-styrki til ESB.
Samkvæmt tilkynningu frá Rannsóknarmiðstöð Íslands, Rannís er Skagafjörður að leiða eitt besta Evrópuverkefnið sem komið hefur fram til þessa en það fjallar um framþróun skólastarfs í sveitarfélaginu. Áður hafa einstakir skólar geta sótt um styrk í Erasmus-verkefni ESB en í ár gafst sveitarfélögum kostur á að sækja þangað stuðning og fengu tveir íslenskir kaupstaðir, Skagafjörður og Kópavogur úthlutað úr menntasjóðum ESB.
Markmið Erasmus+ áætlunarinnar eru m.a. að styðja verkefni sem miða að því að efla grunnþætti eins og læsi og stærðfræði, ýta undir sköpunargáfu og frumkvæði nemenda, vinna gegn brotthvarfi, innleiða upplýsingatækni og almennt efla gæði í menntun á öllum skólastigum og í atvinnulífi.
Þá er að einnig nýbreytni í ár að íslenskir háskólar geta í fyrsta sinn fengið styrki til stúdenta- og starfsmannaskipta til landa utan Evrópu. Úthlutað var ríflega 30 milljónum króna til slíkra verkefna sem fela meðal annars í sér samstarf við Armeníu, Ísrael, Bandaríkin og Kína.