Skaftárhlaup er hafið. Hlaupið kemur úr eystri katli en enn eru engin merki um hlaupið í byggð. Ís í jöklinum sígur sem er talin óræk vísbending um hlaup.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er nú fylgst grannt með gögnum úr GPS-stöð í Eystri Skaftárkatli í Vatnajökli enda liðið á 6. ár síðan hann hljóp.
Verið er að athuga gögn úr vatnshæðarmælanetinu og fara yfir stöðuna.
Frekari upplýsingar verða gefnar síðar í dag. Búist er við að hlaupið komi til byggða eftir tvo daga.
Varað er við eiturgufum sem kunni að vera í nágrenni umbrotanna.