Skafrenningur á öxnadalsheiði

Hálka og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Vetraraðstæður eru einnig  á fjallvegum á Vestfjörðum en greiðfært er á flestum vegum á láglendi. Ófært er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar en unnið er að mokstri.

Þannig hljóðar skeyti Vegagerðarinnar þegar vika er liðin af maí, en ástandið er þó víða skaplegt. Á Suður- og suðvesturlandi eru flestar leiðir greiðfærar. Á Vesturlandi er víðast hvar greiðfært á láglendi en vetraraðstæður á fjallvegum. Það er mikið til greiðfært á Norður- og Austurlandi, ef Öxnadalsheiðinni sleppir.