Plastlaus september er árvekniátak sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Fólk er hvatt til að taka þátt í Plastlausum September á vefsíðunni:
https://plastlausseptember.is/
Þar kemur fram að plast endist í þúsundir ára og er því afar slæmur kostur fyrir einnota notkun. Plast brotnar niður á mjög löngum tíma og þá í öreindir sem fer út í náttúruna.
Einnig kemur fram að Allt plast sem við notum og fer ekki til endurvinnslu, safnast fyrir á urðunarstöðum eða í nátturunni og veldur þar skaða um ókomna tíð. Plast endar allt of oft sérstaklega í ám, vötnum og sjó.
Plast dregur til sín ýmis mengunarefni og þegar það endar í vef lífvera geta efnin þar með endað í því sem við borðum.
Svo kemur einnig fram á vefsíðu Plastlauss September að mjúkplast innihaldi stundum hormónaraskandi efni sem séu skaðleg fólki..