Sjúkraflugvélar Mýflugs fóru í 806 útköll á síðasta ári þar sem fluttir voru 882 sjúklingar. Þetta er aukning frá árinu 2017 en þá voru sjúkraflugin 796. Árið 2016 voru flugin 670 og árið 2015 voru 599 flug. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mýflugi.
Stöðugur vöxtur hefur verið í fjölda sjúkrafluga eins og sjá má á tölunum og segir í tilkynningunni að nú sé svo komið að þörf er á að hafa tvær sjúkraflugvélar til taks til að anna eftirspurninni.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að í hverju sjúkraflugi Mýflugs sé sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði Akureyrar og sérhæfður læknir frá Sjúkrahúsinu á Akureyri þegar um er að ræða alvarlega veika sjúklinga eða sjúklinga sem hafa lent í slysum.