Verkfallið hófst 11. janúar. Meðan á því stendur verður ekki hægt að skrá nýjar flugvélar inn til landsins. Ein þeirra sem bíður skráningar er vél frá flugfélaginu Erni, sem nota á sem varaflugvél í sjúkraflug. Hörður Guðmundsson framkvæmdastjóri flugfélagsins, segir að þetta hafi haft áhrif í síðustu viku þegar flytja átti sjúkling til Svíþjóðar í líffæraskipti. Þá varð bilun í vélinni sem átti að flytja hann: \"Því miður gátum við ekki brugðið þeirri vél undir okkur þannig að það varð að fresta fluginu um sólarhring,“ segir Hörður við RÚV.
Seinkunin hafði ekki áhrif á heilsu sjúklingsins í þetta sinn, en það gæti gerst síðar: \"Ef varavélin fæst ekki skráð þá getum við bara lent í verulegum vandræðum og þá getum við ekki komið sjúklingum undir læknis hendur eins og þarf.“
Hörður segir að afleiðingarnar geti orðið mjög alvarlegar fyrir flugrekstur í landinu dragist verkfallið á langinn, þar sem eftirlit er þá ekki í samræmi við Evrópureglur: \"Þar sem öll leyfi bæði flugfélaga og allra annarra rekstraraðila eru vottuð á evrópska efnahagssvæðinu gæti svo farið að Ísland yrði sett á svartan lista hjá Flugöryggisstofnun Evrópu ef þetta heldur áfram með þessum hætti,“ segir Hörður í téðri frétt RÚV í kvöld.