Sjúklingur í tækjageymslu

\"Svo er einn af sjúklingunum mínum hérna inni á tækjageymslu,“ segir Tómas Guðbjartsson í viðtali við fréttamann 365 en visir.is hefur birt sláandi upplýsingar um aðbúnað á Landspítalanum.

Tómas Guðbjartsson er formaður prófessoraráðs Landspítalans. Eftir því sem fram kemur á visir. is segir hann óásættanlegt að ríkisstjórnin leggi ekki meira fé til heilbrigðismála þegar ríkissjóður er rekinn með afgangi.

Sjúklingar eru vistaðir út um allt, en sjúkrastofur eru yfirfullar.

„Við erum sökuð um það að vera með væl og andlegt ofbeldi en þetta er ekki væl. Við erum dálítið eins og rispuð plata en mér sem lækni hér ber skylda til að upplýsa um hvernig ástandið er hérna á spítalanum. Það fer að styttast í næstu kosningar og ég held að kjósendur, alveg sama hvar þeir standa í pólitík, séu orðir langþreyttir á harmsögum af Landspítalanum,“ hefur visir.is eftir lækninum.

Alla frétt vísis má lesa hér.