Sjúklingar munu dvelja á einkastofum

Þátturinn Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30 í kvöld mun fjalla um nýja Landspítala við Hringbraut sem á að taka til starfa eftir 6-7 ár ef framkvæmdaáætlanir standast.  Gerbylting verður á aðstöðu sjúklinga með tilkomu nýs Landspítla en að sögn Bylgju Kærnested, deildarhjúkrunafræðings á Hjartadeild Landspítala er aðstaða sjúklinga, sem og starfsfólks löngu orðin óviðunandi.  Samkvæmt hönnun og teikningum að nýjum Landspítala munu sjúklingar dvelja á einkastofum og notast við sér salerni en þetta mun m.a. draga úr algengri sjúkdómahættu sem löngu er þekkt innan veggja spítalans.  Rætt er við Bylgju ásamt fjölda málsmetandi aðila í þættinum í kvöld sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30.  Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson en kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.