Sjúklingar borga of mikið

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra var gestur í Þjóðbraut á þriðjudagskvvöldið. Hann svaraði þar gagnrýni á fjárframlög til heilbrigðismála.

Kristján sagði kostnaðarþátttöku almennings vera of háa og að hún verði að lækka. Hann sagði margt hafa áunnist á síðustu árum og ekkert bendi til annars en svo verði áfram.

Kristján sagði að Íslendingar hafi aldrei komist þangað sem Danir, Svíar og Norðmenn eru í þessum málaflokki en að því sé stefnt.

Kristján gerir ráð fyrir, sem og svo margir aðrir, að heilbrigðismálin verði meðal helstu mála komandi kosningabaráttu og hann verði óhræddur við að takast á um þau mál.

Kristján gefur kost á sér til endurkjörs.