Í nýrri tilkynningu sem ASÍ sendi frá sér í dag er bent á auknum kostnaði verði velt á sjúklinga frá og með síðustu mánaðarmótum.
Þar er bent á að þann 1. mars síðastliðinn hafi stjórnvöld hækkað þak á greiðsluþátttöku fyrir heilbrigðisþjónustu um 2 prósent. Á sama tíma hafi komugjald á sjúkrahús hækkað um 2,3 til 3,2 prósent.
Auk þessa hafi einingarverð sjálfstætt starfandi sérfræðilækna hækkað um nærri 5 prósent frá því að nýtt kerfi tók gildi 1. febrúar í fyrra.
ASÍ bendir á nýútkomna skýrslu Ríkisendurskoðunar um „Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu“. Þar er bent á að fullnægjandi greiningu vanti þegar stofnunin gerir samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega er bent á rammasamning við sjúkraþjálfara og sjálfstætt starfandi lækna í þessu samhengi.
„Viðbrögð Sjúkratrygginga voru að boða uppsögn á rammasamningum við sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og sjúkraþjálfara með sex mánaða fyrirvara. Enn hefur þó ekki komið til uppsagnar en í frétt frá stofnuninni segir að það verði ekki gert fyrr en velferðarráðuneytið hafi tekið afstöðu til nauðsynlegra aðhaldsaðgerða í samræmi við fjárlög 2018”.
„Viðbrögð stjórnvalda eru, enn á ný, að velta auknum kostnaði yfir á sjúklinga. ASÍ hefur ítrekað mótmælt of háu greiðsluþaki sjúklinga og bent á að hlutfallslega fleiri fresti læknisheimsóknum hér á landi en á hinum Norðurlöndunum vegna kostnaðar.”, segir í tilkynningunni.