Sjúklingar á göngum ekki skráðir

Birgir Jakobsson, landlæknir segir um legu sjúklinga á göngum sjúkradeilda að engin samræmd skráning sé á slíkum atvikum. Landlæknir segist gera ráð fyrir að einstakar sjúkrastofnanir haldi skrár um þennan þátt í starfseminni.  

Þetta kom fram í samtali landlæknis við Ólafana í þætti þeirra á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn, eins og raunar alla aðra þætti Ólafanna má sjá hér á vef stöðvarinnar.

Þáttur Ólafanna verður endursýndur í dag og einnig um helgina, en í máli landlæknis kom líka fram, svo sem sagt er frá í annarri frétt hér á Hringbraut, að hann tekur undir með Kára Stefánssyni að auka þurfi framlög til heilbrigðismála og segir heilbrigðiskerfið á Íslandi hafa verið svelt fjárhagslega árum saman. Landlæknir vill þó ekki binda sig við ákveðnar hlutfallstölur í þessu sambandi en Kári hefur sett á oddinn tiltekið hlutfall af landsframleiðslu.