Ekki stendur til að afleggja sjúklingagjöld á Íslandi. Ekkert bendir til þess að sjúklingagjöld verði aflögð.
Í viðtali Rúv við Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra á opnum borgarafundi í Háskólabíói í gær kom fram að hann teldi kerfið ekki gott og að í nýju frumvarpi yrði sett þak á greiðsluhlutdeild sjúklinga.
Hringbraut hefur bent á að 20% af kostnaði við heilbrigðiskerfið greiða sjúklingar nú sjálfir. Þykir það mikið högg og óréttmætt að ofan á heilsubrest þurfi landsmenn að draga upp Visakortin sín, bæði ef slys kemur upp en ekki síður ef um langveikindi og áföll því smfara er að ræða líkt og krabbamein.
Mörg dæmi eru um að kostnaður hjá krabbameinsveikum hlaupi á hundruðum þúsunda. Nýverið var greint frá konu sem segist þurfa að selja íbúð sína eftir að hún greindist með krabbamein.
Fyrir nokkru var birt samanburðarkönnun sem sýndi að Ísland hefur fallið um nokkur sæti í samanburði við gæði heilbrigisþjónustu í nágrannalöndunum. Sjúklingagjöld og langir biðlistar skýra þessa öfugþróun að hluta en heilbrigðisráðherra segir verkföll skýra ástandið að nokkru og hefur verið gripið til ráðstafana til að vinna á biðlistum.