Steingrímur J. Sigfússon. VG, reiddist ræðu Jóns Gunnarssonar, Sjálfstæðisflokki í 2. umræðu um fjárlögin á Alþingi í morgun.
Jón hafði vitnað til ummæla nokkurra nafngreindra Íslendinga, þar á meðal kennara og fjarstaddra Íslendinga, sem höfðu ráðlagt Icesave-samninga á sínum tíma. Rauði þráðurinn í ræðu Jóns var að ef Steingrímur J. Sigfússon og félagar hefðu fengið að ráða og samið hefði verið um Icesave væri lítið fé meðal þjóðarinnar í dag til að bæta hag landsmanna.
Steingrímur kallaði ítrekað fram í og kom svo upp í andsvari að lokinni ræðu Jóns. Steingrímur kallaði Jón „smámenni“ að uppnefna meðal annarra fjarstadda Íslendinga sem ekki gætu svarað fyrir sig. „Það sýnir smæð Jóns Gunnarssonar, að bera sakir á og fjalla óvirðulega um aðila sem ekki geta borið hönd yfir höfuð sér.“
Var í kjölfarið nokkuð rætt um Grýlu og systur hennar Icesave-Grýluna. Jón sagði Grýlu hafa dáið fyrir Evrópudómstólnum.
Brynhildur Pétursdóttir, BF, spurði að loknum orðahnippingum Jóns og Steingríms J. hvort sjálfstæðismenn væru fastir í fortíðinni.