Sjötti hver íslendingur skrifað undir

Alls hafa nú 51,175 Íslendingar ljáð nafn sitt á undirskriftalista Þjóðareignar á netinu sem gerir hann að þeim fjórða lengsta í sögunni hér á landi. Lokað verður fyrir undirskriftarsöfnunina á morgun.

Söfninin kom til vegna áforma sjávarútvegsráðherra síðasta vetur um að afhenda völdum útgerðarmönnum makrílkvóta til sex ára og fara þannig á svig við hefðbundna kvótaúthlutun sem byggir á ársleyfum til veiða. Á heimasíðu aðstandenda söfnunarinnar segir einfaldlega: \"Við undirrituð skorum á forseta Íslands að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu hverjum þeim lögum sem Alþingi samþykkir þar sem fiskveiðiauðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs á meðan ekkert ákvæði um þjóðareign á auðlindum hefur verið sett í stjórnarskrá og þjóðinni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.\"

Metfjöldi undirskrifta varð þegar stuðningsmenn flugvallarins í Vatnsmýri söfnuðu undirskriftun til stuðnings vellinum fyrir tveimur árum, en yfir 57 þúsund manns settu nafn sitt á þann lista. Fyrra metið hafði þá staðið frá 2010 þegar 56 þúsund manns lýstu sig andvíga Icesave-smaningunum.