Sjötíuþúsund gætu farið í verkfall

Hætt er við að þjóðfélagið lamist algerlega verði ekki samið við háskólamenn og starfsmenn á almennum vinnumarkaði í þessari viku eða næstu. Verkfall um 3000 starfsmanna BHM hefur nú staðið í um 6 vikur.  Þann 6. júní mun svo allsherjarverfall tæplega 70.000 manns á almenna markaðnum hefjast.


Hjúkrunarfræðingar munu leggja niður störf á miðvikudaginn 27. mai með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ráðamenn íhuga lagasetningu, en orðræða þeirra nú um helgina hafa farið mjög illa í fulltrúa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.  Samningafundur er boðaður í dag hjár ríkissáttasemjara.


Laugardaginn 6. júní hafa Starfsgreinasambandið, VR, Landssamband verslunarmanna og Flóabandalagið hafa síðan boðað ótímabundið allsherjarverkfall, náist ekki samningar fyrir þann tíma.