Sjötíu milljónir í styrki

Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman og upphafsmaður göngunnar mætir á Þjóðbraut í kvöld til Lindu Blöndal, fimmtudag 11.maí, ásamt Margréti Baldursdóttur.

Gangan sem er auk þess meiriháttar fjáröflum hefur verið farin er árlega í tíu ár en nú verður það í síðasta sinn. Félagið hefur styrkt rannsóknir á brjóstakrabbameini um tugir milljóna en Gunnhildur greindist fyrst með brjóstakrabba fyrir nítján árum og nýlega í fjórða sinn.  Styrktarfélagið styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og hefur veitt íslenskum vísindamönnum 70 milljónir í styrki frá upphafi. 

Þær segja ekki ákveðið hvernig verður staðið að því að halda sjóðnum gangandi en það hyggjast þær gera með fleirum kjarnakonum í Göngum saman hópnum. 

Þær Gunnhildur og Margrét segja að nóg sé komið af viðamikilli sjálfboðavinnu en munu þó ekki hætta söfnunarstarfinu.

Göngum saman á rætur í grasrótarstarfi 22 kvenna sem tóku þátt í Avon göngu í New York haustið 2007 en þar var gengið eitt og hálft maraþon til fjáröflunar fyrir rannsóknir og meðferð á brjóstakrabbameini. Við heimkomuna var ákveðið að halda göngunni áfram og var félagið stofnað í september 2007. Markmið þess er að styrkja íslenskar grunnrannsóknir á eðli og orsökum brjóstakrabbameins og flýta fyrir bættri meðferð og auknum lífslíkum kvenna sem greinast með meinið.