Í nýjasta þætti Sjónarhorns ræðir Þórdís Lóa við fólk framtíðarinnar, næstu kynslóð samfélagsins. Er komandi kynslóð bjartsýn á framtíð sína innan hins íslenska samfélags? Eru hún svartsýn eða bjartsýn á atvinnumarkaðinn hérna heima eða leitast hún eftir atvinnutækifærum erlendis?
Í þættinum er margs að spyrja. Er ungt fólk í dag að velja sér nám út frá fjárhagslegum hagnaði eða vegna áhuga? Meðal viðmælenda eru nemar við Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, ásamt nýútskrifuðum.
Meðal viðmælenda í þættinum er Hildur Hafsteinsdóttir en hún hefur nýlokið grunnnámi í Almennum málvísindum við Háskóla Íslands. Hún var spurð hvort hún væri bjartsýn á atvinnutækifæri sín í kjölfar námsloka. Að hennar mati þarf hún að skapa sín eigin atvinnutækifæri út frá menntun sinni. Ekki er nóg að ljúka námi, rölta inn til fyrirtækja og krefjast atvinnu út frá gráðunni einni. Ungt fólk þurfi að skapa sína eigin reynslu og vinna sig inná atvinnumarkaðinn.
Sverrir Sigfússon, útskriftarnemi úr Kvikmyndafræði við Háskóla Íslands segir sína kynslóð vera þá síðustu sem fæðist þar sem tilkoma internetsins sé ekki sjálfsagður hlutur. Með tilkomu internets hefur heimurinn opnast fyrr fyrir yngri kynslóðirnar, þar sem börn geti náð í sitt eigið efni til að horfa á, á vefsíðum líkt og YouTube og leitað sér hinna ýmsu upplýsinga um heiminn á leitarvélum líkt og Google.
Meðal spurninga sem Þórdís Lóa spyr gesti sína í nýjasta þætti Sjónarhorns er hvernig ungt fólk nýtir sér almenningssamgöngur á Íslandi. Rakel Guðmundsdóttir, nemi í rekstrarverkfræði við Háskóla Íslands, segir að ungt fólk í dag reyni að velja húnsæði sín út frá hagstæðum kjörum, frekar en staðsetningu og velji í kjölfarið að eiga einkabíl frekar en að nota almenningssamgöngur, Strætó, til að komast á milli heimilis, vinnu og skóla.