Harðar ásakanir gagnvart samþjöppun útgerðarvalds í landinu koma fram í Fréttablaðinu í dag. Guðmundur Ragnarsson, formaður VM – Félags vélstjóra og málmiðnaðarmanna, segir að komin sé fram ný tegund af útgerðarmönnum sem hafi í hótunum við sjómenn.
Fréttablaðið hefur eftir Guðmundi að af hálfu útgerðanna sé með öllum ráðum unnið á móti tilraunum verkalýðsfélaganna til að spyrna við fótum á móti breytingum sem útgerðirnar hafi komið á um borð í skipunum.
„Okkar félagsmenn hafa ekki lengur stöðu til að hafa skoðun eða setja fram sínar kröfur án hótana,“ segir hann. Dæmi séu um að mönnum hafi ekki bara verið hótað brottrekstri, heldur útilokun um ráðningu hjá öðrum útgerðum innan SFS. „Við glímum nú við nýja tegund útgerðarmanna. Ég hef ekki kynnst neinu slíku frá því ég byrjaði að vinna við samningagerð,“ segir Guðmundur í samtali við Fréttablaðið.
Hann segir sjö stórar útgerðir ráða öllu. „Staðan er sú að sjómenn andmæla ekki Þorsteini Má í Samherja, Gunnþóri í Síldarvinnslunni, eða þeim á Höfn eða í Vestmannaeyjum. Þetta er veruleikinn sem við glímum við.“
Boðað verður til funda milli jóla og nýárs í kjaraviðræðum félaga sjómanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), en þeim var frestað á föstudag. Sjómenn hafa verið samningslausir í fjögur ár.
Fréttin er öll hér á visir.is.