Sjómönnunum sem skáru sporðinn af hákarli sagt upp störfum - „þessi atburður er algjörlega óréttlætanlegur“

Fyrr í dag fór í dreifingu á samfélagsmiðlum ógeðfellt myndband af tveimur sjómönnum. Á myndbandi sést hvar annar sjómannanna sker sporðinn af hákarli og hendir aftur í sjóinn. Eftir verknaðinn hlógu þeir svo báðir. Eigendur skipsins sendu frá sér yfirlýsingu þess efnis í dag að þeir eigin ekki annan kost en að hafna frekari vinnuframlagi þeirra.   

Yfirlýsinguna í heild má lesa hér að neðan.

„Við eigendur og útgerðaraðilar Bíldseyjar SH 65 hörmum og fordæmum þann óhugnanlega atburð sem kemur fram í myndbandi sem fylgir frétt DV í dag. Við höfum hingað til reynt að  tileinka okkur góð vinnubrögð og ábyrga umgengni um auðlindina og lífríkið almennt. Þessi atburður er algjörlega óréttlætanlegur og þeir sem stóðu þarna að verki eiga sér engar málsbætur. Eigendur og útgerðaraðilar Bíldseyjar SH 65 eiga ekki annan kost en að hafna frekari vinnuframlagi manna sem sýna af sér slíka hegðun.“

Hér að neðan má svo sjá myndbandið umtalaða.