Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna í Norð Vesturkjördæmis, fer yfir stöðuna vegna verkfallsins í þætti Bryggjunnar í kvöld. Kl. 21. Lilja hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir vestan þar sem sjávarútvegurinn er stærsta atvinnugreinin og var m.a. formaður Verkalýðs- og sjómannafélagsins Súganda á árunum 1988 til 2004.
Lilja Rafney telur að skoða þurfi þann möguleika á Alþingi að taka upp ígildi sjómannafsláttar en afslátturinn var aflagður eftir efnahagshrunið. Hún telur að Alþingi geti beitt sér fyrir því að sjómenn fái skattfrjálsa dagpeninga í staðinn. Réttast sé þó að ríkissjóður standi ekki fyrir greiðslum sjómannaafslátttar eins og hann var, í stað útgerðarinnar.