Stjórn Landssambands smábátasjómanna lýsir áhyggjum vegna stöðunnar sem upp er komin vegna innflutningsbanns Rússa á Íslendinga í ályktun sem hún sendi frá sér í gærkvöld. Stjórnin telur að íslensk stjórnvöld hafi ekki nýtt tímann sem hefur gefist og vill að forseti Íslands nýti vináttu við forseta Rússlands til að miðla málum: \"Við lítum á það mjög alvarlegum augum og við sjáum ekki alveg skýra leið út úr þessu,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri samtakanna í samtali við RÚV í morgun: \"Okkur finnst það eiginlega grátlegt af því það var varað við þessu í fyrra og þessi stóri markaður í Rússlandi er ekki nýtilkominn. Við vorum að vara við þessu á þann hátt að menn mættu ekki fara offari í þessum málum.“
Hann segir enn fremur við miðilinn: \"Okkur finnst það að á þessu ári sem liðið er frá þessari heimsókn utanríkisráðherra til Úkraínu þá hafi stjórnvöld ekki gert mikið í þessum málum,“ segir Örn og vísar til farar Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra til Úkraínu í fyrra. „Við hefðum viljað að það hefði verið farið mjög hægt í þessum málum og strax hafnar viðræður við Rússa í sambandi við þessa markaði, þessa lista og þessi viðbrögð þeirra.“
Örn segir að með þessu séu smábátasjómenn ekki að taka afstöðu til þess hvort Ísland eigi að hætta stuðningi við efnahagsþvinganir gegn Rússum vegna innlimunar Krímskaga og átakanna í Úkraínu: \"Það verður að skoða þetta allt saman í stóru samhengi. Þegar farið er út í svona aðgerðir og annað slíkt verður að skoða hvaða hagsmunir eru undir hjá þjóðinni. Þegar þessir gríðarlegu hagsmunir eru undir og þetta hefði verið skoðað á víðum grundvelli og haft samráð og samstarf við söluaðila sjávarafurða þá er ég ekki viss um staðan væri svona í dag eins og hún er,“ segir hann við RÚV.