Sjómannadeila og tilskipanir trumps

Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra mætir í þáttinn til Sölva þar sem m.a. farið er yfir tilnefningu hans sem ráðherra utanríkismála en einnig gjörðir nýs Bandaríkjaforseta.

Drífa Hrönn Kristjánsdóttir, verkefnastjóri um móttöku flóttafólksins og Edda Ólafsdóttir, sérfræðingur um málefni flóttafólks og hælisleitenda hjá velferðarsviði mæta á Þjóðbraut. Fimm sýrlenskar fjölskyldur komu til landsins á mánudaginn.  Fjórar fjölskyldur setjast að í Reykjavík.  Hvað tekur nú við hjá þessu fólki? Við spyrjum að því.

Til Lindu Blöndal mæta þingmennirnir Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn, Páll Magnússon, sjálfstæðisflokki og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata. Páll er formaður atvinnuveganefndar sem fjallar um sjávarútvegsmál en umræðurnar voru meðal annars sú grafalvarlega staða sem komin er upp vegna verkfalls sjómanna. Tilskipanir Trumps og hans nýlegu ákvarðanir og aðgerðir komu þingmönnunum nokkuð ólíkt fyrir sjónir. 

Þjóðbraut stjórna Linda Blöndal og Sölvi Tryggvason