Sjómaður lést eftir að hann féll fyrir borð

Karlmaður á sextugsaldri er látinn eftir að hann féll útbyrðis af grásleppubáti á veiðum á Húnaflóa austur af Drangsnesi um miðjan dag í gær. Hinn látni er frá Hólmavík en tveir voru við veiðar í bátnum sem gerður er út frá Hólmavík. 

Hinn sjómaðurinn um borð hafði samband við Neyðarlínu, þyrla Landhelgisgæslu flaug á vettvang og nærliggjandi björgunarsveitum var gert viðvart. Læknir úrskurðaði sjómanninn látinn á staðnum.