Sjókvíar

Í Svíþjóð er umræða um að banna fiskledi í sjókvíum. Fyrst verður eldið bannað á þremur svæðum en líkur eru sagðar á að sænsk yfirvöld banni með öllu fiskeldi í sjókvíum.

Evrópudómstóllinn hefur með Weser dómi rutt þessu banni í Svíþjóð braut ásamt því að mjög hertar umhverfisreglur verða innleiddar í Svíþjóð. Sagt er að þær skuli byggja þær á þessum dómi.

Dómstóllinn segir í greinargerð með dóminum að rökstuddar efasamdir séu um fiskeldi í sjó sökum umhverfisáhrif. Þessi umræða í Svíþjóð ratar fyrr en seinna inn í umræðuna hér á landi.  

Hér á landi eru málaferli í gangi þar sem þess er krafist að rekstrarleyfi og starfsleyfi fyrir eldi á laxi í Arnarfirði verði gerð ógild meðal annars á þeim forsendum að málsmeðferð við útgáfu leyfanna hafi verið háð annmörkum og fari því gegn ákvæðum náttúrverndarlaga og fiskeldislaga.

Hvort dagar fiskeldis í sjó í Svíþjóð eru senn taldir skal ósagt látið en ljóst er að efasemdir um kvíaeldi fisks í hafinu munu án efa hafa neikvæð áhrif.