Sjóðstaða orkuveitu batnar til muna

Afkoma Orkuveitu Reykjavíkur hefur batnað til muna á síðustu misserum að því er fram mun koma á aðalfundi hennar sem fram fer í Gamla bíói á morgun. Þar verða birta tölur úr efnahagsreikningi fyrirtækisins sem sýna að markmiðum aðgerðaáætlunar fyrirtækisins, Plansins svokallaða, verður náð fyrr en ætlað var. Munar þar nokkru að að baki er einhver harðasti frostavetur í síðari tíma sögu Reykjavíkur og næstu byggða - og mun raunar vera ofsagt að þeim vetri sé formlega lokið.


Planið var samþykkt vorið 2011 og fól í sér að bæta sjóðstöðu OR um 50 milljarða króna fyrir árslok 2016. Markmiðinu verður sem sagt náð mun fyrr, að því er segir i tilkynningiu frá OR vegna fundarins á  morgun. 


Fjöldi erinda verður haldinn á fundinum, þar á meðal frá framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur, en hann fjallar þar um áfanga ljósleiðaravæðingar á árinu 2015 og bregður upp myndum af mögulegri „snjallvæðingu“ samfélagsins í framhaldinu.