Sjö hælisleitendur fluttir úr landi

Sjö albanskir hælisleitendur, þar af þriggja manna fjölskylda, voru fluttir aftur til Albaníu með flugi á miðvikudagskvöld. Flugvél var leigð undir flutninginn sem að fullu er griedd af Fröntex, landamæravörslu Ev´rópusambandsins.

„Minn umbjóðandi fékk ekki að vita þetta fyrr en honum var birt niðurstaða kærunefndar útlendingamála. Við vorum boðuð þangað með klukkutíma fyrirvara,“ segir Kolbrún Garðarsdóttir, lögmaður eins mannsins í samtali við visir.is. Maðurinn hafði verið hér á landi í tæpt ár. Honum var synjað um frestun réttaráhrifa og handtekinn á staðnum. Honum var greint frá því að þá um kvöldið yrði flogið með hann aftur til heimalands hans, Albaníu.

„Minn umbjóðandi var handtekinn því þeir treystu því ekki að hann skilaði sér í flugið,“ segir Kolbrún við vefinn og heldur að allir albönsku hælisleitendurnir sem voru staddir hér á landi hafi verið fluttir samtímis með fluginu. „Ég hef á tilfinningunni að kærunefnd útlendingamála hafi flýtt sér að græja öll málin svo hægt væri að safna þeim öllum saman í eina vél.“

Innanríkisráðuneytið og Útlendingastofnun óskuðu eftir því að embætti ríkislögreglustjóra sæi um flutning hælisleitendanna. Frávísunin var unnin í samstarfi við FRONTEX, landamærastofnun Evrópusambandsins. Flogið var með fólkið frá Litháen og þaðan til borgarinnar Dusseldorf í Þýskalandi. Þaðan var svo flogið með fólkið til Tirana, höfuðborgar Albaníu. FRONTEX greiðir að fullu kostnaðinn af því að leigja flugvél fyrir hópinn, að því er visir.is greinir frá.