Sjö ferðamenn á hvern íslending

Vinsælustu ferðamannastaðirnir á Íslandi eru vissulega komnir að þölmörkum, en landið getur þó vel tekið á móti fleira ferðafólki ef Íslendingar fara að ráðum þeirra þjóða sem hafa náð að dreifa túristum eins og best verður á kosið yfir landið og árið.

Þetta kemur fram í áhugaverðu og afar upplýsandi viðtali við einn helsta ferðamálasérfræðing landsins, Edward H. Huibjens, prófessor við Háskólann á Akureyri og fyrrverandi forstöðumann Rannsóknarsmiðstöðvar ferðamála í höfuðstaðnum nyrðra, en Edward er landfræðingur að mennt og þaulvanur leiðsögn um landið og rannsóknum á innviðum og áskorunum ferðageirans frá því áður en greinin varð ein meginstoða íslensks atvinnulífs.

Í viðtalinu ber Edward saman Ísland og aðra vinsæla ferðamannaeyju í Evrópu, Mallorcu út af austurströnd Spánar sem fjölmarir Íslendingar hafa sótt, margir hverjir árum saman. Miðað við þær 2,3 milljónir ferðamanna sem búist er við að sæki Ísland heim á þessu ári megi gera ráð fyrir sjö ferðamönnum á hvern Íslending að staðaldri, en á Mallorca sé að jafnaði 21 ferðamaður á hvern innfæddan yfir árið. Ísland eigi því enn langt í land með að verða jafn fjölsóttur og ásetinn ferðamannastaður og perla Miðjarðarhafsins, eins og Mallorca er gjarnan kölluð, en vel að merkja; strax þurfi að huga að betri stýringu á straumi ferðafólks um landið svo kúnninn beri áfram hróður eldfjallaeyjunnar með sér út í heim.

Ferðalagið byrjar klukkan 20:00 í kvöld.