Sjö ára dóttir snædísar skammar eiganda volvo-jeppa - „aldrei gera þetta“

Sjö ára gömul dóttir Snædísar Baldursdóttir var á gangi við Frostaskjól þegar hún sér hvar Volvo jeppa er lagt upp á gangstéttinni. Á myndbandi sem Snædís birtir sést hvar bifreiðinni er lagt vel upp á gangstétt við hliðin á götunni sjálfri. 

„Þessi bíll er á gangstéttinni. Sjáið þið, þetta er gangstéttin. Þessi bíll er á gangstéttinni. Þarna er gatan. Sjáið þið bílinn þarna sem kemur og þetta er gangstéttin og þetta er gata. Aldrei gera þetta, setja bílinn á gangstéttina, aldrei, nema það séu mjög margir bílar og það má gera það og maður er búinn að spyrja,“ segir dóttir Snædísar í myndbandinu.

Samkvæmt umferðarlögum er ólögmætt að leggja upp á gangstétt og er sektin 10 þúsund krónur fyrir brot á þeim lögum.

Hér að neðan er slóð sem hægt er að ýta á til að sjá myndbandið.

https://www.facebook.com/snaedisb/videos/10157668437880439/