Stefán Jón Hafstein, sem nefndur hefur verið við forsetaframboð, var gestur Kvikunnar í vikunni, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar. Hann sagði þar að Katrín Jakobsdóttir, formaður VG yrði góður forseti ef hún ákveddi að fara fram og næði kjöri.
Katrín, sem einnig var gestur Kvikunnar telur ólíklegt að hún fari fram en aftekur það þó ekki með öllu.
Kvikan verður endursýnd um næstu helgi en þar er að finna líflegt og áhugavert spjall þeirra Stefáns Jóns og Katrínar.
Í þættinum segir Stefán Jón sem fyrr segir að það sé ekki meginspurningin hvort Ólafur Ragnar Grímsson fari fram eða ekki. Meginmálið sé að fella hann.
Sjá svar Katrínar við spurningu um hennar hug gagnvart Bessastöðum hér.