Sjávarútvegurinn

Sérfræðingur um vísindi segir aðkallandi að Ísland marki sér sérstöðu. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu Hugins Freys Þorsteinssonar ráðgjafa hjá ATON og doktor í vísindiaheimspeki. Huginn Freyr flutti erindi á fundi um tækniframfarir í sjávarútvegi sem SFS-Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi efndu til.

Tilefni þessa fundar var útgáfa nýrrrar skýrslu SFS en þá skýrslu vann ATON. Skýrslan er um samfélagslegar breytingar vegna aukinnar sjálfvirkni og tæknivæðingar í sjávarútvegi. Þær munu hafa mikil áhrif á vinnumarkaði um allan heim.

Á fundinum var meðal annars kastað fram spurningum á borð við hverning íslenskt menntakerfi og íslenskur vinnumarkaður eru undir það búinn að umbyltingar í tækni og í sjálfvirkni eru framundan.

Rætt var hvernig íslenskt atvinnulíf og samfélag geta skapað Íslandi samkeppnisforskot í slíkri fyrisjáanlegri þróun. Forsendur séu til vaxtar fyrir íslenskan sjávarútveg. En með breyttu sniði frá því sem Íslendingar hafa áður séð.  

Störfum í íslenskum hátækniiðnaði mun fjölga við þróun lausna og aukin útflutningaverðmæti verða til við sölu á þeim lausnum. Hins vegar beri að tryggja að fólk í vinnslu sjávarafurða geti sérhæft sig í að nýta nýja tækni í sinni vinnu. Þetta merkir betri nýtingu hráefnis og betri afurðir og enn meiri vöruþróun og frekari virðisauka.

Miklar breytingar eru í vændum fyrir hagkerfi heimsíns. Ísland er ekki undanskilið þar.

rtá

Nánar www.sfs.is