Dr. Ágúst Einarsson, gaf nýverið út víðfema útttekt á sjávarútveginum sem nefnist ,,Íslenskur Sjávarútvegur í alþjóðlegu samhengi\".
Ágúst segir í viðtali við Sölva í þættinum Bryggjan í kvöld að sjávarútvegur sé enn mikilvægasta atvinnugrein Íslands þegar allt er talið. Tuttugasta öldin hafi verið öld sjávarútvegsins og það sé honum að þakka að á Íslandi hafi byggst upp jafn góð lífsskilyrði og raun ber vitni.
Ágúst tók nokkur ár í vinnslu bókarinnar sem fer yfir sögulega þróun, hagfræðileg hugtök sem tengjast atvinnugreininni og tillögur til umbóta til að efla greinina og lægja öldur á milli ólíkra skoðana. Framlag sjávarútvegs sem hluta af landsframleiðslu er enn það mikið að það verði að telja greinina þá mikilvægustu enn, slík sé verðmætasköpunin sem komi líka til af mörgum stoð- og þjónustugreinum í kringum hafsóknina.