Sjávarstrætó gæti verið góð lausn

Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafnar segir að sjávarstrætó geti verið mjög sniðug lausn til að skoða, enda séu slíkir samgöngumátar þekktir víða erlendis, en Gísli var meðal gesta í þættinum Ég bara spyr, sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld.

Gísli svaraði spurningu frá lesanda á upplýsingaveitunni Spyr.is á dögunum, þar sem spurt var hvort Íslendingum væri leyfilegt að búa í húsbátum. Gísli sagði ekki leyfilegt að skrá lögheimili í báta, en tímabundin viðvera í bátum væri vel möguleg. Fyrir slíka viðlegu eru greiddar um 10 til 12 þúsund krónur á mánuði, auk rafmagns sem notað er.

Í þættinum er Gísli spurður hvernig honum lítist á að fólk nýti sér sjávarleiðina til að komast á milli staða eins og Grafarvogs og til vinnu í miðbæ. Gísli segist mjög hrifinn af slíkum tilraunum og þær sé verðugt að skoða og þróa áfram.

Þátturinn Ég bara spyr er í umsjá Rakelar Sveinsdóttur. Hann byggir á fyrirspurnum almennings og svörum sem birt eru á upplýsingaveitunni Spyr.is. Áhorfendur Hringbrautar eru hvattir til að taka þátt í umræðum þáttarins, með því að senda inn spurningar til Spyr.is. Valið er úr svörum í hverri viku til að ræða nánar í Ég bara spyr á Hringbraut.