Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri DV, og hreindýrabóndinn Stefán Hrafn Magnússon hafa stofnað ferðaskrifstofuna Sólartún þar sem höfuðáhersla verður lögð á gönguferðir á Suður-Grænlandi. Reynir segir að fólk geti í gönguferðunum beinlínis upplifað örlög heimsins með því að skoða hvernig Grænlandsjökull er að hopa. Fréttablaðið greinir frá.
„Hugmyndin með þessu er að gera út á gönguferðir til Suður-Grænlands þar sem Stefán býr og hefur byggt upp heilan búgarð í auðninni. Við teljum að Suður-Grænland verði það næsta sem fólk mun uppgötva í túrismanum, slóðir Eiríks rauða, Leifs heppna og allt það. Síðan er náttúran þarna auðvitað rosaleg. Þarna getur maður beinlínis horft á örlög heimsins þegar þú skoðar hvernig Grænlandsjökull er að hopa. Bráðnun Grænlandsjökuls er spegilmyndin af því sem er að gerast í heiminum. Við sjáum þetta auðvitað á Íslandi líka en þarna er þetta svo sláandi,“ segir Reynir í samtali við Fréttablaðið.
Hann vonast til þess að gönguferðirnar leiði til vitundarvakningar um ástandið. „Þetta er svo rosalegt því að ef jökullinn bráðnar alveg þá hækkar yfirborð sjávar um sjö metra og þá fer ýmislegt á kaf maður, það er bara þannig. Við munum fara um þessar slóðir og reynum að rækta umhverfisvitund með fólki.“