„sjáum á svipnum ef eitthvað vantar“

Hjónin Katrín Hjálmarsdóttir og Svanur Gunnarsson tóku við rekstri hinnar einu sönnu Litlu kaffistofu á Sandskeiði í nóvember síðastliðinn. Þau segjast vera í góðu sambandi við fjölmarga fastagesti og fara í einu og öllu eftir óskum þeirra um veitingar. Einnig hafa þau aukið þjónustu við vinnandi menn með fjölbreyttan og „gamaldags“ hádegismat. Ferðalagið skrapp í pönsur á kaffistofuna.

Í apríl í fyrra tóku nýjir rekstraraðilar við rekstrinum af Stefáni Þormari Guðmunds­syni sem rak staðinn í tæp­lega ald­ar­fjórðung eða frá ár­inu 1992 eða í tæpan aldarfjórðung.

Olís á húsið en Katrín og Svanur leigja af þeim og reka staðinn sem er mörgum fastur punktur í tilverunni – og á tímum afar nauðsynlegur þegar illa veðrar á Hellisheiði.  Katrín og Svavar segjast ekki enn hafa lent í því að halda utan um stóra hópa vegfarenda þegar ófærð verður á heiðinni en þekkt er að kaffistofan leikur lykilhlutverk þegar yfir fennir á Sandskeiði.