Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kvaddi sér hljóðs á þingi í morgun og gerði pattstöðuna á Alþingi að umræðuefni.
Hann sagði vegna ummæla annars þingmanns um að botninum væri náð, að enginn gæti fullyrt um það.
Sjálfheldan sem þingið væri í hefði orðið til þess að sjálfsvirðing þingsins væri í frjálsu falli. E.t.v. myndu menn nýta þessa vitleysu núna til að réttlæta enn meiri vitleysu fyrir næstu jól.
Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingu, sagði að fjármálaráðherra væri með „sveltikerfi“ í gangi gagnvart þeim sem minna mættu sín og sú væri ástæðan fyrir baráttu minnihlutans. Vísaði hún þar til þess að helsta fyrirstaðan gegn því að fjárlög fáist afgreidd er að öryrkjar og aldraðir fái afturvirkar bætur.