Birgir Jakobsson landlæknir segir að með samningi Sjúkratrygginga og sérfræðilækna sé hægt að segja að hér tíðkist sjálftökukerfi. Það er að sérfræðingar stjórni hversu mikið þeir vinni og hversu oft þeir kalla sjúklinga til sín. Og Sjúkratryggingar borgi.
Birgir segir einnig að með þess háttar kerfi tíðkist of oft að læknar vinni óþarfa verk. Það er að þeir haldi sjúklingum of lengi, boði þá oft í viðtöl.
Þrátt fyrir að hlutfallslega séu margir sérfræðingar hér á landi sé oft erfitt, og stundum útilokað, að koma sjúklingum til sérfræðilækna. Þeir séu stundum og uppteknir af sömu sjúklingum í langan tíma.
Birgir segir okkur ekki verja minni peningum til heilbrigðismála en aðrir þjóðir. En leiða megi líkur að því að við nýtum peningana verr en aðrar þjóðir.
Viðtal við Birgi verður sýnt á Þjóðbraut í kvöld, strax að loknum leik Íslands og Portúgals.