Íslenskur karlmaður fannst látinn í fangelsinu að Litla-Hrauni í morgun. Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir þetta í samtali við Mbl.is og segir að ekkert bendi til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Því er talið að um sjálfsvíg hafi verið að ræða.
„Við erum slegin, okkar fyrsta verkefni er að hlúa hvert að öðru, bæði starfsfólki og vistmönnum“, segir Páll við Mbl.is. Hann segir einnig að málið sé til rannsóknar hjá lögreglu og að búið sé að hafa samband við aðstandendur hins látna.