Sjálfstæðismenn vilja bankann burt

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn furða sig á því að meirihlutinn í borginni vilji halda byggingaráformum Landsbankans við Hörpu til streitu þrátt fyrir efasemdir stjórnenda hans um bygginguna og mikils fjölda athugasemda við staðsetningu höfuðstöðva bankans á þessu viðkvæma svæði.
 
Meirihlutinn í umhverfis-og skipulagsráði segir hins vegar uppbyggingu á lóðinni, þar sem Landsbankinn ætlar að reisa höfuðstöðvar sínar, mikilvæga svo að þarna verði ekki áfram hola, stórt sár í miðborginni.
 
Sjálfstæðismenn vilja aftur á móti vinna með bankanum til að finna viðunandi framtíðarstaðsetningu í borginni. Júlíus Vífill Ingvarsson og Herdís Anna Þorvaldsdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis-og skipulagsráði borgarinnar, lögðu til á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær að svigrúmið sem nú hefði myndast yrði notað til að vinna með bankanum og að fundin verði viðunandi framtíðarstaðsetning í borginni fyrir höfuðstöðvar hans. Þau fögnuðu því að stjórnendur Landsbankans hefðu ákveðið að staldra við og endurskoða áform sín. Og bentu á að fyrst hafi það verið skoðað að nýta lóðina undir nýbyggingar Listaháskólans og náttúruvísindasafn.
 

Meirihlutinn samþykkti að vísa þessari tillögu frá. Í bókun hans kemur fram að mjög mikilvægt sé að jarðhæðir höfuðstöðvanna verði opin og lifandi almenningsrými  - þetta sé fjölmennur vinnustaður  sem eigi að vera bakland þjónustu og verslunar í miðborginni.  Mælist ráðið til að þessum hugmyndum verði beint til lóðarhafa.  Mikilvægt sé að þarna verði ekki áfram hola - stórt sár í borgarmyndinni.

Sjálfstæðismenn létu þá bóka að þessi afstaða væri furðuleg - hafnað væri að fara betur yfir skipulag lóðarinnar á þeim forsendum að þyldi enga bið að fylla holu.  Sú afstaða meirihlutans að allt sem í eina tíð hafi verið ákveðið í borgarskipulagi skuli standa óhaggað lýsi hvorki metnaði né hugmyndaauðgi meirihlutans.