Sjálfstæðismenn tapa fylgi

Nú þegar tveir dagar eru í Landsfund sjálfstæðismanna fá þeir fremur laka útkomu í fylgiskönnun MMR. Sjálfstæðisflokkurinn fengi nú 21,7% fylgi, fellur um 3,5% frá síðustu könnun MMR fyrir mánuði.

Vinstri grænir fá betra veganesti fyrir sinn landsfund sem einnig fer fram um helgina. Þeirra fylgi eykst um 3,5% frá síðustu könnun eða jafn mikið og Sjálfstæðisflokkurinn tapar. Fylgi VG er nú tæp 12%.

Samfylking er með svipað fylgi og VG og má muna sinn fífil fegurri frá því að rætt var um turnana tvo. Píratar mælast sem áður langstærstir með 34,2% fylgi. 10. hver Íslendingur kýs Framsóknarflokkinn og Björt framtíð er komin af dauða svæðinu með 6,5% fylgi. Fyrir nokkru fór fylgir niður fyrir þau mörk sem þarf til að fá þingmenn en síðan hefur orðið hallarbylting og formannsskipti.

Sjá má könnun MMR hér.